Óvænt örlög (Rauðu ástarsögurnar 4)

AvPoulsen

Ljudbok
Isländska, 2023

65 kr

Lyssna direkt i Bokus Reader – eller ladda ned till din enhet

Beskrivning

Þann 22. janúar árið 1940 fæðast tvær stúlkur hjá ljósmóðurinni í Karild sem bíða ólík örlög. Önnur þeirra er greifadóttir sem elst upp á Herragarðinum í Hardingborg á meðan hin flakkar móðurlaus á milli barnaheimila. Af einskærri tilviljun liggja leiðir stúlknanna saman á 15 ára afmælisdaginn þeirra og tekst með þeim vinátta. Endurfundir þessir munu þó einnig svipta hulunni af gömlum leyndarmálum sem hafa afgerandi áhrif á lífið eins og stúlkurnar þekkja það.

Erling Poulsen (1919-1995) var danskur blaðamaður og rithöfundur. Hann skrifaði fjölda skáldsagna í flokki afþreyingarbókmennta, sem nutu mikilla vinsælda á sínum tíma. Ásamt því að skrifa undir eigin nafni notaðist Poulsen einnig við dulnefnin Bodil Forsberg og Else-Marie Nohr. Þekktasta skáldaga hans er „Drømmen om det hvide slot“, sem var gerð að kvikmynd árið 1962 undir leikstjórn Anker Sørensen.

Produktinformation