72 kr
Lyssna direkt efter köp
72 kr
Lyssna direkt efter köp
72 kr
Lyssna direkt efter köp
72 kr
Lyssna direkt efter köp
72 kr
Lyssna direkt efter köp
72 kr
Lyssna direkt efter köp
72 kr
Lyssna direkt efter köp
Sir John Melton er myndarlegur, hlédrægur og ríkur maður. Þegar hann biður Önnu, dóttur Sheffords læknis, að giftast sér ákveður hún að segja já án þess að elska hann til þess bjarga fjölskyldu sinni. Hann veit að hún elskar hann ekki en vill einungis vera með henni til að komast hjá einmanaleikanum. Hún stígur inn í hans framandi heim af velmegnun þar sem hennar góðmennska og fegurð skilur engan eftir ósnortinn. Það eru þó margar spurningar sem leita á Önnu og það sem ruglar hana mest er hvort hann muni vera sáttur við að fá svo lítið til baka og hvers vegna hann hafi valið hana…
Barbara Cartland (1901-2000) var afar afkastamikill höfundur. Hún skrifaði 723 bækur á sínum lífstíma og af þeim eru 644 rómantískar skáldsögur. Á heimsvísu seldust yfir 1. milljarður af bókum hennar og hafa þær verið þýddar yfir á 36 tungumál. Bækur hennar hafa ávallt verið gríðarlega vinsælar og slóg hún met fjölda vinsældarlista. Hún varð að einskonar goðsögn sinnar lífstíðar og verður ávallt minnst fyrir rómantísku skáldsögurnar sem eru elskaðar af fólki sem trúir því að ástin sé það mikilvægasta í lífi hverrar manneskju. Vegna skilvirkni hennar hefur hún verið nefnd í metbókum Guinnes fyrir að hafa gefið út flestar bækur á einu ári og einnig var hún heiðruð af Elísabetu Bretadrottningu fyrir skrif sín sem sín félagslegu og pólitísku framlög.
72 kr
Lyssna direkt efter köp
72 kr
Lyssna direkt efter köp
92 kr
Lyssna direkt efter köp
Lífið getur breyst á einu andartaki. En hvað verður um fjölskyldu og hjónaband þegar mest á reynir? Danielle Steel leiðir okkur í allan sannleikann um það.
Alexandra Parker er með marga bolta á lofti. Hún starfar á virtri lögmannsstofu í New York, er gift og á þriggja ára barn. En þegar hún fær óvæntar fréttir um heilsuna skekur það stoðir hjónabandsins. Sam, maðurinn hennar, vinnur á Wall Street og á erfitt með að takast á við veikindi konu sinnar. Allt verður þetta til þess að þau fjarlægjast hvert annað og þegar annað áfall skellur á sem skilur þau enn meira að verður Alexandra að ákveða hvort hjónabandið sé þess virði að bjarga - og þá hvernig.
Danielle Steel er mest seldi lifandi höfundur heims og hefur ritað yfir 200 bækur, þar með taldar skáldsögur, barnabækur, óskáldað efni, ljóðasafn og texta fyrir tónlist. Verk hennar hafa samtals selst í meira en milljarði eintaka um allan heim og hefur hvert þeirra komist á metsölulista á heimsvísu, þar með talið hjá New York Times, Wall Street Journal og The Sunday Times. Franska ríkisstjórnin veitti henni heiðursnafnbótina „Officier“ við reglu lista og bókmennta árið 2002 og „Chevalier“ við regluna „Legion d’Honneur“ árið 2014. Á milli skrifa stundar Steel mannúðarstarfsemi af miklum hug og býr til skiptis í París og San Francisco. Danielle Steel er níu barna móðir.
92 kr
Lyssna direkt efter köp
Hvað gerist þegar fortíðin bankar upp á og við neyðumst til að horfa í eigin barm? Danielle Steel leiðir okkur hér í ferðalag í tíma og rúmi eins og henni er einni lagið.
Lífið leikur við Charles Waterston - eða svo heldur hann. En þegar konan hans fer frá honum og fyrirtækið sem hann vinnur hjá flytur frá London til New York neyðist hann til að enduruppgötva sjálfan sig. Á leiðinni í skíðaferð verður hann veðurtepptur í litlum smábæ og endar með að leigja gamalt hús. Þar uppgötvar hann dagbók konu sem bjó í húsinu 200 árum áður og fyrr en varir er hann farinn að sjá henni bregða fyrir á göngum hússins. Í ljós kemur að þau eiga ýmislegt sameiginlegt og gæti þessi upplifun orðið það sem bjargar honum, með því að leyfa honum að sleppa tökum á eigin fortíð og líta af bjartsýni fram á veginn.
Bók fyrir alla aðdáendur metsöluhöfundarins alkunna.
Danielle Steel er mest seldi rithöfundur á heimsvísu. Hún hefur skrifað yfir 200 bækur sem hafa selst í meira en billjón eintökum. Allar bækur Steel hafa ratað á metsölulista víða um heim, þar með talið New York Times, Wall Street Journal og Sunday Times.
92 kr
Lyssna direkt efter köp
Líf þriggja para fléttast saman í voninni um að eignast barn. En verður draumurinn einhvern tímann að veruleika? Danielle Steele sýnir hér drauma og þrár fólks, sorg þeirra og missi eins og henni er einni lagið.
Diana og Andrew Douglas ætla sér að búa til barn í brúðkaupsferðinni. Löngu seinna, þegar barnið sem þau dreymir um er enn ekki í sjónmáli neyðast þau til að horfast í augu við það hverju þau eru tilbúin að fórna til að láta drauminn verða að veruleika.
Charlie Winwood vill fylla húsið af börnum, en kona hans, Barbie Mason, vill aðeins skemmta sér. Þegar Charlie fær niðurdrepandi fréttir þarf hann að endurskoða líf sitt, ekki síst sambandið við konu sem hefur ekki sömu markmið í lífinu og hann.
Það eru nítján ár á milli Pilar Graham og Brad Coleman og hann á þegar tvö uppkomin börn. Þegar þau gifta sig fer Pilar skyndilega að sjá eftir að hafa ekki eignast sín eigin börn. Og þá vaknar spurningin: Eiga maður sem er að verða afi og kona um fertugt yfir höfuð að reyna að eignast börn saman?
Bókin var aðlöguð að sjónvarpi árið 1995, undir upphaflega titlinum Mixed Blessings.
Danielle Steel fæddist í Bandaríkjunum árið 1947. Hún er mest seldi lifandi rithöfundur heims, með yfir 900 milljónir eintaka seld af 210 ritverkum. Hún er þekktust fyrir dramatískar ástarsögur, en hefur einnig gefið út barnabækur, ljóðabækur og ýmislegt fleira. Hún stofnaði og rekur stofnunina Nick Traina Foundation í nafni sonar síns sem lést ungur að aldri. Ritverk hennar fjalla gjarnan um fjölskyldudrama, missi og sorg og eru uppi kenningar um að sumar þeirra séu byggðar á lífi Danielle sjálfrar. 22 verka hennar hafa verið aðlöguð sem kvikmyndir, bækur hennar hafa verið þýddar á 43 tungumál og eru þær seldar í 69 löndum um allan heim. Danielle Steel býr til skiptis í París og San Francisco, á 9 börn og er hvergi nærri hætt að skrifa.
69 kr
Lyssna direkt efter köp
Hvað gerir kona sem missir allt sem hún hefur nokkurn tímann elskað? Hér er á ferðinni enn eitt meistaraverkið frá Danielle Steel, bók sem þú getur ekki lagt frá þér.
Samantha Taylor hættir í vinnunni og flytur úr borg í sveit til að hefja nýtt líf eftir erfiðan skilnað. Þar reynir hún að enduruppgötva sjálfa sig, eignast nýja vini og finnur meira að segja ástina. Hún uppgötvar einnig ást sína á hestamennsku, en það varir ekki lengi þar sem hún dettur af baki og slasast alvarlega. Nú þarf hún að byrja lífið aftur frá byrjun og finna hvað það er sem gerir hana raunverulega hamingjusama. Og það er hægara sagt en gert.
Kvikmyndin Palomino, sem kom út árið 1991, er byggð á bókinni.
Danielle Steel er mest seldi rithöfundur á heimsvísu. Hún hefur skrifað yfir 200 bækur sem hafa selst í meira en billjón eintökum. Allar bækur Steel hafa ratað á metsölulista víða um heim, þar með talið New York Times, Wall Street Journal og Sunday Times
92 kr
Lyssna direkt efter köp
Langar þig til þess að heyra sögur um forboðnar ástir? Þessar sögur eftir Barböru Cartland fjalla um ást í meinum, ást sem kviknar þegar manneskjur eru lofaðar öðrum en tilfinningarnar taka völdin.
Lafði Vesta Cressintonfont ferðast til eyjunnar Katona til þess að giftast Alexander prins í bókinni Á valdi ástarinnar. Þar tekur Count Miklos Czakó á móti henni og vekur með henni tilfinningar sem hún vissi ekki að byggju innan með henni.
Í bókinni Vængir ástarinnar verður Amanda Burke, dóttir fátæks prests, á vegi Ramsay lávarðs sem hrífst strax af henni og ákveður að giftast henni. Það sama kvöld gerist nokkuð sem snýr lífi hennar á hvolf og hún neyðist til að játast Ramsay til þess að geta bjargað manninum sem hún elskar í raun og veru.
Markgreifinn af Weybourne fær það hlutverk að fylgja guðdóttur drottningarinnar til brúðkaups síns í bókinni Brúður gegn vilja sínum. Á ferðalagi þeirra bjargar hann þeim frá hópi ræningja og verður einnig ljóst að hann ætti einnig að bjarga henni frá hjónabandi með furstanum.
Í hafróti ástríðna er Sylvia ráðin sem barnfóstra á herragarði Roberts. Þar hvíla dimmir skuggar og leyndarmál sem valda því að Robert býr til óyfirstíganlega veggi á milli hans á Sylviu, þrátt fyrir að þau elski hvort annað.
Barbara Cartland (1901-2000) var afar afkastamikill höfundur. Hún skrifaði 723 bækur á sínum lífstíma og af þeim eru 644 rómantískar skáldsögur. Á heimsvísu seldust yfir 1. milljarður af bókum hennar og hafa þær verið þýddar yfir á 36 tungumál. Bækur hennar hafa ávallt verið gríðarlega vinsælar og slóg hún met fjölda vinsældarlista. Hún varð að einskonar goðsögn sinnar lífstíðar og verður ávallt minnst fyrir rómantísku skáldsögurnar sem eru elskaðar af fólki sem trúir því að ástin sé það mikilvægasta í lífi hverrar manneskju. Vegna skilvirkni hennar hefur hún verið nefnd í metbókum Guinnes fyrir að hafa gefið út flestar bækur á einu ári og einnig var hún heiðruð af Elísabetu Bretadrottningu fyrir skrif sín sem sín félagslegu og pólitísku framlög.
92 kr
Lyssna direkt efter köp
Sarah Ashington er dóttir frægrar leikkonu og ensks tebónda í Ceylon. Þegar móðir hennar deyr er Sarah upp á föðurfjölskylduna komin og flyst að lokum til Ceylon, þar sem hún kynnist öðrum enskum tebónda, Clinton Shaw. Upp hefst stormasamt ástarsamband og þegar faðir Söruh deyr fer hana að gruna að hennar eigið líf sé einnig í hættu. En hver er eiginlega Clinton Shaw og hver eru raunveruleg áform hans? Og hvað er leyndarmálið á bak við fjölskylduperlurnar, sem aðeins kvenkyns afkomendur ættarinnar mega eiga?
Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.
92 kr
Lyssna direkt efter köp
Í skógi einum í Sviss er sérkennilegur klettur. Sagan segir að ef hann er heimsóttur á tíma veiðimánans sjái maður framtíðarmaka sinn. Cordelia Grant er ensk stúlka í heimavistarskóla í Sviss sem ákveður að heimsækja klettinn með vinkonum sínum til að sjá hvort sagan sé sönn. Og þær verða ekki fyrir vonbrigðum. Í skóginum hitta þær dularfullan en myndarlegan mann sem sýnir Cordeliu alveg sérstaka athygli. Cordelia snýr aftur til Englands, en getur ekki hætt að hugsa um þennan ókunna, heillandi mann. Þegar hann birtist við dularfullar aðstæður á fjölskylduheimili hennar fer hún að halda að þjóðsagan um klettinn sé kannski sönn…
Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.
92 kr
Lyssna direkt efter köp
Franski baróninn Rollo de Centeville er fæddur til að sigra og hertaka, líkt og norrænir forfeður hans, sem eitt sinn herjuðu á Frakkland. Það er varla hægt að finna ólíkari manneskjur en drottnunargjarna baróninn og sjálfsöruggu ensku listakonuna sem málar smámyndina af honum. En ekkert myndi gleðja hrokafullt fyrirmennið meira en að sigrast á þóttafullri og stoltri konu eins og Kate. Kate vinnur sér inn frægð sem listmálari í París og frelsi í kjölfarið. En er hún í raun og veru frjáls? Því hún mun aldrei gleyma martröðinni í höllinni í Normandí, djöfullegum elskhuga og leyndarmálinu sem ævinlega tengir saman Kate Collison og Rollo de Centeville.
Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.
92 kr
Lyssna direkt efter köp
Nora Tamsin er sjálfstæð og viljasterk ung kona. En eins og aðrar ungar, ógiftar konur á viktoríutímanum í Englandi er hún fjárhagslega háð föður sínum. Þegar faðir hennar deyr tekur viðskiptafélagi hans við forræði Noru. Charles Herrick er gjarnan kallaður "gaupan" vegna þess hve sérstætt augnaráð hans er, en Nora lærir fljótt að nafnið á vel við hann á fleiri en einn hátt. Ásamt syni Charles, Stirling, ferðast þau til Ástralíu í leit að gulli, eins og svo margir aðrir á þessum tíma. En Nora áttar sig á að Charles er heltekinn hefndarþrá og er með áform um að taka yfir hinn svokallaða "hvíta kastala" heima á Englandi. Til að bæta gráu ofan á svart verður Nora ástfangin. En hvor Herrick-feðganna á hjarta hennar? Og hversu langt er Charles Herrick tilbúinn að ganga til að ná fram hefndum?
Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.
92 kr
Lyssna direkt efter köp
Dauðinn sækir þá heim sem trufla hina eilífu hvíld konunganna… Fyrir Judith Osmond virðast allir draumar hennar hafa ræst. Þrátt fyrir að hafa fæðst í fátækt erfir hún ríkan ættingja og getur því gert allt sem hún vill. Hún giftist Tybalt, ungum fornleifafræðingi sem hún hefur verið ástfangin af frá unga aldri, og þau ferðast til Egyptalands, nokkuð sem Judith hefur alltaf dreymt um að gera. En það er í Egyptalandi sem bölvun konunganna virðist ætla að rætast og það reynir á kænsku Judith að leysa ráðgátuna.
Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.
92 kr
Lyssna direkt efter köp
Í miðjum skógi í Cornwall á Englandi standa sex styttur úr steini. Sagan segir að sex jómfrúr úr klaustri í Cornwall rufu heit sín og var breytt í stein í refsiskyni. En sjöunda jómfrúin átti önnur örlög. Mörgum árum seinna er klaustrið orðið að höll St. Larston fjölskyldunnar og örlögin blikka aðra unga konu. Kerensa Carlee elst upp í fátækt rétt við St. Larnston höllina. Án annarra kvenkosta en mikils metnaðar og enn meiri fegurðar tekst henni að fá vinnu sem þerna í húsinu, en þar er reimt. Kerensa er hins vegar ástfangin af húsinu og er staðráðin í að verða húsfreyja þar. En örlögin eru með önnur áform. Þrátt fyrir metnaðinn flækist Kerensa inn í minningar og ráðgátur og tilvera hennar í Cornwall viktoríutímans vekur upp bæði brjálæði og gamla hefnigirni…
Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.
92 kr
Lyssna direkt efter köp
Faldir fjársjóðir. Dularfullir atburðir. Myrkir leyndardómar. Anna Brett óttast að þurfa að vera kennslukona á heimili annarra það sem eftir er ævinnar. En þegar hinn glæsilegi skipstjóri Redvers Stretton kemur aftur inn í líf hennar, ferðast hún frá köldu landslagi Englands yfir í dulúð Kyrrahafsins þar sem ekkert er það sem það lítur út fyrir að vera og hún lendir í miðri ráðgátu sem aðeins hún getur leyst. Meðan myndarlegi, ljóshærði og bláeygði skipstjórinn gerir sitt besta til að fá Önnu til að gleyma fortíð sinni áttar hún sig á því að myrk lendarmál liggja undir heillandi yfirborði hans. Morð fær mjög á ungu konuna og í draumum hennar eltir hana leyndardómur um falinn fjársjóð. Það er ekki tilviljun að skip Strettons er kallað „Leynda konan“ og á ferð þeirra að Kóraleyju í Kyrrahafinu neyðist Anna til að horfast í augu við manninn sem gæti átt eins mörg leyndarmál og hún. Á frumstæðri eyjunni, þar sem fólk trúir enn á galdra og myrk öfl, kemur sannleikurinn um Redvers Stretton í ljós. Og ráðgátan um leyndu konuna er loksins leyst.
Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.
92 kr
Lyssna direkt efter köp
Frá því Suwellen sá Matelandsetrið fyrst vissi hún að hún myndi einhvern daginn búa þar. En hvernig getur óskilgetið barn nokkurn tímann uppfyllt þess háttar draum? Leyndardómsfullar aðstæður senda Anabel og Joel Mateland landflótta þvert yfir hnöttinn. Á eldfjallaeyju við strendur Ástralíu elst Suwellen dóttir þeirra upp og minningar um England virðast dofna. En þegar Susannah, hálfsystir Suwellen, kemur óvænt í heimsókn verða örlagaríkar breytingar á lífi þeirra allra. Susannah er eins og eldfjallið sem ríkir yfir eyjunni, hún fær gamla afbrýðissemi og ný átök til að gjósa upp. Þegar harmleikur verður kastast Suwellen inn í hættulegan blekkingavef. Heima á Englandi verður hún að bera grímu hinnar töfrandi konu – veikt dulargervi, sem kemur henni í lífshættu…
Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.
92 kr
Lyssna direkt efter köp
Frá því Dallas Lawson hittir hinn heillandi og alræmda de la Talle greifa, veit hún að ekkert mun verða eins og áður. Kastalinn sjálfur hefur einnig dularfull áhrif á Dallas, en hann er djúpt inni í vínhéruðum Frakklands og segir sagan að þar sé reimt. Dallas er staðráðin í að ljúka ævistarfi föður síns; vinna við endurbætur á ómetanlegum málverkum í kastalanum. Hún sogast hins vegar inn í dularfulla leyndardóma – bæði sem varða kastalann og eiganda hans. Fljótt er ljóst að ekki aðeins málverkin í kastalanum þarfnast blíðu og umhyggju. Þegar Dallas hnýtur um gamalt leyndarmál þróast aðstæður yfir í að verða örlagaríkar, bæði fyrir de la Talle fjölskylduna og Dallas sjálfa. Getur hún treyst franska greifanum? Og voru það örlögin sem ráku hana í fangið á honum, eða var það eitthvað mun óhugnanlegra … ?
Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.
92 kr
Lyssna direkt efter köp
Favel Farrington hittir Roc Pendorric á eyjunni Capri, þar sem hún býr með föður sínum. Það er ást við fyrstu sýn og Favel er mjög hamingjusöm þegar hún kemur á nýja heimilið sitt, Pendorric í Cornwall, nýgift. Systir Rocs og fjölskylda taka henni opnum örmum og það kætir hana að staðarbúar gefa henni strax titilinn „brúðurin frá Pendorric.“ En gleði Favel breytist fljótt í áhyggjur. Á veggjum kastalans hanga myndir af fyrri brúðum Pendorric – ungum konum sem allar létust við dularfullar aðstæður. Sagan segir að norn hafi lagt álög á brúðir Pendorric: Brúðurin mun deyja ung og ganga aftur í kastalanum þar til ný brúður tekur við af henni. Smám saman læðist óttinn inn í líf Favel. Ill augu virðast fylgja henni um allt og eitt óhappið tekur við af öðru. Fljótlega verður Favel að viðurkenna að þjóðsagan gæti verið sönn – og að einhver sé að reyna að drepa hana. Skyndilega fá orðin „þar til dauðinn aðskilur okkur“ nýja og ískyggilega merkingu …
Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.
92 kr
Lyssna direkt efter köp
Harriet Delvaney missir föður sinn ung, en hefur stjúpmóður sína, Jenny, til að hugga sig við. Þegar Harriet giftir sig uppgötvar hún hins vegar að fjölskyldusagan er allt önnur og skuggalegri en hún hélt. Bevil er draumaeiginmaður, en þrátt fyrir það verður Harriet mjög afbrýðissöm. Er Jenny eins góð vinkona og hún lést vera? Og hvað varð um erfðaskrá föður hennar? Harriet fer smám saman að trúa gömlu þjóðsögunni um að þegar klukkan stoppar á Menfreya mun einhver brátt deyja.
Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.
92 kr
Lyssna direkt efter köp
Minella Maddox elst upp á enskum herragarði. Frá unga aldri veit hún hins vegar að henni er ekki ætlað að búa þar til frambúðar, enda er hún aðeins dóttir kennslukonunnar. Í fyrsta sinn sem hún sér hinn hrokafulla greifa Fontaines Delibes kallar hún hann „greifann á hestbaki“. Hann bæði hræðir hana og heillar og fundur þeirra verður örlagaríkur. Þrátt fyrir að hann sé frægur kvennabósi getur Minella ekki hætt að hugsa um hann og fljótlega snýst líf hennar um hann.
Greifinn ræður Minellu sem lagskonu dóttur sinnar, hún flytur með þeim til Frakklands, beint inn í ólgandi hringiðu frönsku byltingarinnar. Hún verður svo ástfangin að hún getur ekki sleppt takinu, þrátt fyrir að líf hennar sé í hættu og maðurinn sem hún elskar muni án efa verða eitt af fyrstu fórnarlömbum byltingarinnar.
Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.
92 kr
Lyssna direkt efter köp
Hin sautján ára Pippa uppgötvar nokkuð skelfilegt. Systir hennar, Francine, sem lést nokkrum árum áður, var í raun myrt. Hún fannst á veiðisetri í furstadæminu Bruxenstein ásamt baróninum manni sínum, en barn þeirra var hvergi að finna. Pippa ferðast til Bruxenstein til að komast að því hvernig – og hvers vegna – systir hennar var myrt og hvað varð um barn Francine. Tilraun hennar til að komast að sannleikanum um dauða systur sinnar færir hana mitt í valdabaráttu um furstadæmið og hún mætir pólitískum öflum sem veigra sér ekki við að myrða fyrir völd. Mitt í þessu hrífandi en hræðilega landi hittir Pippa þó einnig ástina og yfirþyrmandi ástríðu.
Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.
92 kr
Lyssna direkt efter köp
Jane Lindsay hefði aldrei getað ímyndað sér að hún yrði rík. Hvað þá að hún yrði ástfangin af manni sem hún gæti ekki treyst. Jane hafði verið hugfangin af húsi hinna þúsund lampa frá því hún heyrði fyrst af því. Þegar hún er loks komin í húsið, eftir óhamingjusamt ástarsamband og brúðkaup af skynsemisástæðum, er það allt öðruvísi en hún hafði ímyndað sér. Hún upplifir sig óvelkomna, eins og einhver vilji hana feiga. Jane reynir í örvæntingu að komast að því hvað er í gangi, en kemst að því að hún hefur ekki lengur stjórn á atburðarásinni. Atburðarás, þar sem hver hryllilegur atburðurinn gerist á fætur öðrum.
Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.
92 kr
Lyssna direkt efter köp
Ellen Kellaway var alltaf fátæki ættinginn, stúlkan sem átti sér enga framtíð. En þegar hinn myndarlegi og ríki Phillip Carrington verður ástfanginn af henni og biður hennar, lítur út fyrir að líf hennar sé að breytast til hins betra. Örlögin verða hins vegar til þess að Ellen neyðist til að flytjast til frænda síns, Jago, sem býr í kastala á afskekktri eyju. Hún áttar sig fljótt á því að dularfullir atburðir eiga sér stað á eyjunni og sér til skelfingar uppgötvar hún að í kastalanum er herbergi sem hún hélt að væri aðeins til í martröðum sínum ...
Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.
92 kr
Lyssna direkt efter köp
Ævafornar rústir. Fjölskylduhneyksli. Forboðin ást. Caroline Verlaine veit að eitthvað er að. Systir hennar, Roma, er horfin og enginn getur sagt henni hvers vegna. Eina vonin er að fara þangað sem systir hennar sást síðast – Lovat Stacy, en það er hús með banvæna sögu. Hafið og kviksandurinn við strendur Dover hafa ógnað Stacy fjölskyldunni svo kynslóðum skiptir. En kviksandurinn er ekki það hættulegasta fyrir Caroline. Allir búa yfir leyndarmáli, ekki síst hinn dularfulli ungi erfingi Napier Stacy. Sama hvaða leið Caroline velur er jörðin undir fótum hennar óstöðug. Og því nær sem hún kemst sannleikanum, því nær kemst hún því að eiga sömu örlög og systir hennar…
Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.
92 kr
Lyssna direkt efter köp
Hin nítján ára Helena er í lautarferð með bekkjarfélögum sínum í Svartaskógi þegar hún týnist. Sex dögum síðar finnst hún aftur, en man ekkert hvað gerðist. Eða gerir hún það? Helena telur sig muna eftir að vera bjargað af hinum heillandi Maximilian, en er sagt að það geti ekki verið annað en ofsjónir og draumar. Mörgum árum seinna snýr hún aftur í skóginn, staðráðin í að leysa ráðgátuna um týndu dagana og hinn dýrlega Maximilian. Hún áttar sig þó fljótt á að hún er lent mitt í dularfullum aðstæðum sem enda með skelfingu.