Grimmsbraeður – författare
Visar alla böcker från författaren Grimmsbraeður. Handla med fri frakt och snabb leverans.
125 produkter
Ævintýri
E-bok, 2022
100 kr
Lägg i varukorg
Í þessu safni af þjóðsögum og ævintýrum Grimmsbræðra, í þýðingu Theodórs Árnasonar, gefst einstakt tækifæri til þess að rifja upp kynnin við gamalkunnar persónur úr heimsþekktum ævintýrum en ekki síður að uppgötva önnur minna þekkt ævintýri sem einnig er að finna í þessum heimsbókmenntum. Ævintýri …
Hans járnserkur
E-bok, 2022
12 kr
Lägg i varukorg
Þegar veiðimenn konungs hverfa einn af öðrum inni í skógarlendi konungsins kemur erlendur veiðimaður konungi til bjargar og býðst til að fara inn í hinn illræmda skóg og komast að því hvað valdi brotthvarfi mannana. Finnur hann þá villimann sem talinn var hafa herjað á íbúa konungsríkisins og færir …
Lífsvatnið
E-bok, 2022
11 kr
Lägg i varukorg
Þegar konungurinn liggur fyrir dauðanum leggja synir hans þrír í hættuför til að sækja handa honum lífsvatnið sem talið var það eina sem gæti bjargað lífi hans. Þeir halda af stað hver í sínu lagi en mæta allir dvergkríli sem spyr hvert þeir séu að æða. Eldri bræðurnir virtu dverginn að vettugi og …
Gröfin
E-bok, 2022
11 kr
Lägg i varukorg
Þegar fátækur bóndi biður ríkan nágranna sinn um að lána sér korn til að fæða börnin sín ákveður ríki bóndinn að gefa honum frekar kornið gegn því að hann vaki yfir gröfinni hans í þrjár nætur eftir hans dag. Fátæki bóndinn samþykkir boð nágranna síns grunlaus um afleiðingarnar. Þegar kemur að …
Jóhannes tryggðatröll
E-bok, 2022
12 kr
Lägg i varukorg
Jóhannes tryggðartröll var uppáhaldsþjónn konungs sem á dánarbeði sínu bað Jóhannes um að ganga ungum syni sínum og arftaka í föðurstað eftir sinn dag. Jóhannes framfylgdi loforði konungs eftir hans dag, sýndi syninum höllina og gersemarnar, allt ríkidæmi hans, utan litla herbergisins innst á …
Sagan um rófuna
E-bok, 2022
11 kr
Lägg i varukorg
Í ævintýrinu Sagan um rófuna segir frá tveimur bræðrum, einum ríkum og öðrum fátækum. Sá fátæki hafði gerst bóndi og tekist að rækta risastóra rófu sem hann færði konungi og fékk að launum mikil auðævi, land og peninga. Ríki bróðirinn varð mjög öfundsjúkur og hyggst ráða bróður sinn af dögum en …
Handalausa stúlkan
E-bok, 2022
11 kr
Lägg i varukorg
Fátækur malari hittir gamlan mann sem biður hann um að gefa sér það sem er að húsbaki heima hjá honum gegn því að gera hann ríkan. Malarinn samþykkir þetta kostaboð enda fullviss um að hann sé einungis að láta af hendi eitt af eplatrjánum sínum fyrir auðævin. Hann heldur því hróðugur heim og …
Djúpvitri fuglinn Griff
E-bok, 2022
12 kr
Lägg i varukorg
Dóttir konungs var mikið veik og engin leið virtist til að bjarga henni önnur en ef spádómur rættist um að stúlkan yrði heilbrigð ef hún borðaði sérstakt epli. Konungur bar nú út boð um að hver sá sem myndi finna slíkt epli skyldi fá að eiga dóttur hans fyrir konu. Bóndi nokkur sendir þrjá syni …
Rósin
E-bok, 2022
11 kr
Lägg i varukorg
Í ævintýrinu Rósin segir frá óförum konungssonar sem var rænt af matsveini hirðarinnar og komið fyrir í fóstri. Drottningunni var hins vegar kennt um ódæðið og konungurinn lét loka hana uppi í turni í 7 ár. Konungssonurinn bjó yfir töframætti sem matsveinninn reyndi stöðugt að nýta í eigin þágu en …
Fósturdóttir Maríu meyjar
E-bok, 2022
11 kr
Lägg i varukorg
Þegar María Mey býðst til að taka dóttur bláfátæks viðarhöggsmanns í fóstur tekur hann boðinu fegins hendi. María Mey fer með ungu stúlkuna til himnaríkis þar sem hún unir hag sínum vel. Þegar unga stúlkan er orðin 14 ára fer María Mey í ferðalag og færir stúlkunni lykla að öllum 13 herbergjum …
Kátur kunningi
E-bok, 2022
12 kr
Lägg i varukorg
Þegar Kátur kunningi hafði lokið herþjónustu hélt hann af stað út í óvissuna. Hann átti hann ekkert sér til viðurværis annað en brauðhleif og fjóra skildinga þegar hann hittir á Sankti Pétur sem kominn var til jarðarinnar í dulargervi. Þeir taka höndum saman, þvælast um og betla sér til viðurværis …
Listfengu bræðurnir fjórir
E-bok, 2022
11 kr
Lägg i varukorg
Þegar fátækur bóndi getur ekki lengur séð fjórum listfengnum sonum sínum farborða halda þeir út í heim til að freista gæfunnar. Þegar konungur óskar eftir aðstoð við frelsa dóttur sína úr klóm ógurlegs dreka taka bræðurnir höndum saman um að bjarga konungsdótturinni. Til ósætta kemur þó þegar þeir …
Kötturinn og músin
E-bok, 2022
11 kr
Lägg i varukorg
Kötturinn og músin voru vinir. Þegar þau voru að undirbúa sig fyrir veturinn ákváðu þau að geyma vetrarforðann sinn í kirkjunni því þar myndi enginn þora að stelast í forðann þeirra. Veturinn leið og þegar þrengja fór að í búinu bað músin köttinn um að koma með sér og sækja vetrarforðann í …
Hans hugprúði
E-bok, 2022
11 kr
Lägg i varukorg
Hans hugprúði er einungis lítið barn þegar honum og móður hans er rænt af tveimur ræningjum og þau flutt í helli langt frá mannabyggð. Þarna máttu þau dúsa í mörg ár eða allt þar til Hans hugprúði krafðist þess að fá að vita hver faðir hans væri. Nú voru góð ráð dýr því móðir hans þóttist þess …
Gullfuglinn
E-bok, 2022
12 kr
Lägg i varukorg
Þegar konungur uppgötvar að það vantar eitt epli á gulleplatréð í aldingarðinum fyrirskipar hann að vaka skuli yfir trénu til að komast að því hver hafi tekið eplið. Yngsti sonur kemst næst því að klófesta þjófinn sem reynist vera fugl úr skíragulli en nær einungis að fanga eina gullfjöður. Þegar …
Tungumálin þrjú
E-bok, 2022
11 kr
Lägg i varukorg
Í ævintýrinu Tungumálin þrjú segir frá gömlum aðalsmanni sem átti einn son. Aðalsmaðurinn sendir son sinn til frægra kennara í öðrum löndum því sonurinn þótti svo heimskur og virtist ekkert geta lært. Allar tilraunir til þess að kenna syni aðalmannsins misheppnuðust, að því er virtist í fyrstu, og …
Gæsastúlkan hjá brunninum
E-bok, 2022
11 kr
Lägg i varukorg
Gömul kona býr ein fjarri allri byggð og gætir gæsa sinna. Dag hvern rogast hún með grös og ávexti utan úr skóginum á bakinu án þess að kikna. Fólki líkaði ekki við gömlu konuna og töldu hana göldrótta. Dag einn verður á vegi hennar ungur og hraustur piltur sem býðst til að aðstoða hana við að bera …
Stúlkan í glerkistunni
E-bok, 2022
12 kr
Lägg i varukorg
Fátækur skraddarasveinn var á ferðalagi í atvinnuleit um ókunnugar slóðir þegar hann villist af leið. Hann klifrar upp í stóra eik og býr sig undir nóttina þegar hann sér ljósbjarma í fjarska. Hann ákveður að freista gæfunnar og gengur á ljósið. Til dyra kemur gamall og grár karl sem með semingi …
Börnin hennar Evu
E-bok, 2022
11 kr
Lägg i varukorg
Þegar búið var að reka Adam og Evu úr Paradís urðu þau að vinna baki brotnu til að eiga í sig og á. Þau eignuðust mörg börn, fríð og ófríð og þegar Drottinn ákveður að heimsækja þau þrífur Eva allt hátt og lágt og sýnir Drottni börnin. Drottinn blessar öll börnin hennar Evu sem þykir Drottinn …
Álfagullið
E-bok, 2022
11 kr
Lägg i varukorg
Gullsmiður og skraddari voru saman á ferðalagi þegar þeir heyra einkennilegan söng. Þeir ganga á hljóðið og finna hóp af dvergum dansandi og syngjandi saman í hring. Inni í miðjum hringnum stóð gamall maður og brýndi hníf. Gamli maðurinn rakar skegg og hár af þeim félögum sem nú var hætt að lítast …
Götóttu skórnir
E-bok, 2022
12 kr
Lägg i varukorg
Konungur einn átti 12 dætur sem allar voru forkunnarfagrar. Á hverjum morgni vöknuðu dætur konungs, grunlausar um það hvers vegna skór þeirra væru gatslitnir, líkt og þær hefðu verið úti að dansa alla nóttina. Konungur vildi komast að hinu sanna og bauð hverjum þeim sem gat leyst ráðgátuna að …
Skraddarinn í himnaríki
E-bok, 2022
11 kr
Lägg i varukorg
Drottinn almáttugur var á gangi í garðinum sínum þegar barið var að dyrum í Himnaríki. Pétur, sem var einn eftir í Himnaríki fór til dyra og mætir þar skraddara sem segist vera bláfátækur og heiðarlegur. Pétri grunar að skraddarinn sé ekki allur þar sem hann er séður en hleypir honum engu að síður …
Hafmærin í tjörninni
E-bok, 2022
11 kr
Lägg i varukorg
Einu sinni var malari sem áður var hamingjusamur og auðugur en var nú orðinn félítill og áhyggjufullur. Dag einn sér hann fagra hafmey stíga upp úr tjörninni við myllustífluna. Hann verður hræddur en hafmærinni tekst að róa hann með hljómfagri röddu sinni og sannfærir hann um að hún geti bjargað …
Sóldán gamli
E-bok, 2022
12 kr
Lägg i varukorg
Soldán er gamall en tryggur hundur. Bóndanum finnst Soldán orðinn frekar lúinn og ekki gera neitt gagn lengur og vill því losa sig við hann. Kona bóndans vorkennir hins vegar Soldáni og biður bóndann um að hlífa honum. Soldán heyrir samtal hjúanna og ákveður að sýna tryggð sína í verki. Hann biður …
Litli bóndinn
E-bok, 2022
11 kr
Lägg i varukorg
Litli bóndinn var eini fátæki bóndinn í sveitinni. Allir hinir bændurnir voru stórefnaðir. Fátæka bóndanum og konunni hans hafði alltaf langað til að eignast kú. Fór svo að kona bóndans bað frænda sinn um að smíða handa þeim kálf úr brúnum við. Bóndinn þóttist viss um að slíkur kálfur myndi dag …
Spunakonurnar
E-bok, 2022
11 kr
Lägg i varukorg
Í ævintýrinu um Spunakonurnar kynnumst við stúlku einni sem er svo löt að hún nennir engu, ekki einu sinni að spinna ull. Dag einn reiðist móðir hennar óskaplega yfir letinni og slær hana utanundir. Stúlkan fer að gráta og í sömu andrá ber drottninguna að garði. Móðirin skammast sín fyrir leti …
Læknirinn og dauðinn
E-bok, 2022
12 kr
Lägg i varukorg
Þegar fátækur bóndi eignast 13. barnið sitt heldur hann af stað út á þjóðveginn til að finna skírnarvott til að tryggja barninu bjarta framtíð. Á vegi hans verða Guð almáttugur, Kölski og dauðinn sjálfur. Eftir nokkra umhugsun velur bóndinn fátæki dauðann sem skírnarvott því hann gerir ekki upp á …
Mjallhvít og rauðrós
E-bok, 2022
11 kr
Lägg i varukorg
Systurnar Mjallhvít og Rósrauð voru augasteinar móður þeirra sem var fátæk ekkja. Systurnar voru mjög nánar og hétu hvor annarri því að þær skildu aldrei skiljast að. Skógurinn var þeirra griðarstaður þar sem þær vöppuðu um, tíndu ber og fylgdust með dýrunum. Dag einn um hávetur ber björn að dyrum …
Úlfurinn og tófan
E-bok, 2022
11 kr
Lägg i varukorg
Ævintýrið Tófan og úlfurinn fjallar um sérkennilega vináttu úlfsins og tófunnar. Úlfurinn vildi ráða yfir tófunni sem þurfti að beita brögðum til að fá sínu framgengt. Einu sinni sem oftar vildi úlfurinn að tófan fyndi eitthvað handa honum að éta enda gráðugur mjög. Tófan reyndi hvað hún gat að …
Svanirnir sex
E-bok, 2022
11 kr
Lägg i varukorg
Í ævintýrinu um Svanina sex segir frá konungi sem villist af leið á veiðum. Á vegi hans verður gömul kona sem lofar að aðstoða hann við að komast leiðar sinnar gegn því að giftast dóttur hennar. Konungur samþykkir það en sendir engu að síður börnin sín sjö í felur í annarri höll. Þegar stjúpan …