Tales – författare
373 kr
Skickas inom 5-8 vardagar
194 kr
Skickas inom 5-8 vardagar
457 kr
Skickas inom 3-6 vardagar
641 kr
Skickas inom 3-6 vardagar
34 kr
Lyssna direkt efter köp
Flestir í hinum vestræna heimi, sem eru komnir á fimmtugsaldur eða eru eldri, muna eftir tveimur atburðum frá sumrinu 1969: Þegar menn stigu fyrst fæti á tunglið og morðinu á leikkonunni Sharon Tate. Morðið á þessari ungu, ófrísku konu vakti mikla athygli af tveimur ástæðum, annars vegar var morðæðið óvanalega ruddalegt og hins vegar voru morðin á fimm manns og ófæddu barni framin af afbrigðilegri „fjölskyldu“ eða hópi sem stjórnað var af Charles Manson en honum er oft lýst sem hinum illa sjálfum, sem djöfli í mannsmynd.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
34 kr
Lyssna direkt efter köp
Aldrei fyrr í sænskri afbrotasögu hefur maður bæði viðurkennt og hlotið dóm fyrir að misnota lík kynferðislega. En haustið 2006 gerðist það í Surahammar. Þá var 43 ára starfsmaður í kirkjugarðinum handtekinn, grunaður um að vera náriðill.
Rannsóknin var mjög sérstök því að maðurinn viðurkenndi strax á byrjunarstigi málsins að hafa gert það sem hann var sakaður um. Þar með lauk málinu þó ekki því að maðurinn viðurkenndi einnig að hafa kveikt í kirkju árið 1998 en það mál var óupplýst.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
45 kr
Lyssna direkt efter köp
Það er ekki hægt að lýsa með orðum þeim hryllingi og vanlíðan sem Bobby, sem var aðeins tíu ára, varð að þola heima hjá sér. Á margra vikna tímabili í kringum áramótin 2005–2006 þurfti drengurinn að þola grófar misþyrmingar, svo grófar að síðar ákváðu dómstólar að flokka þær sem pyntingar. Þessar misþyrmingar leiddu að lokum til dauða Bobbys.
Eftir að Bobby var látinn reyndu móðir hans og unnusti hennar að fela dauðsfallið með því að tilkynna að Bobby væri horfinn, á svipuðum tíma og þau sökktu líki hans í vatn nærri heimili þeirra.
Það var röð ýmissa aðstæðna sem að lokum kom lögreglunni á sporið og varð til þess að málið upplýstist.
Móðirin og unnusti hennar voru handtekin og dæmd til langrar fangelsisvistar, þó ekki fyrir morð. „Stjúpfaðir“ drengsins áfrýjaði dómi sínum til Hæstaréttar sem í árslok 2006 ákvað að mál hans væri ekki tækt fyrir Hæstarétt.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
23 kr
Lyssna direkt efter köp
Klukkan 07.45 að morgni miðvikudagsins 19. maí 1999 hófst aðgerðin „Hestur“ með því að Atle Hamre tamningamaður og vagnökumaður var handtekinn.
Efnahagsbrotadeild ríkislögreglunnar og fleiri deildir höfðu í nokkrar vikur unnið að rannsókn málsins ásamt lögreglunni í Sandefjord og Larvik en málið var stærsta og umfangsmesta fjárkúgunarmál sem þá hafði verið rannsakað í landinu. Næstu daga þróaðist málið enn frekar og reyndist ekki eiga sér hliðstæðu í Noregi. Að lokum var Atle Hamre dæmdur til þungrar refsingar fyrir að hafa staðið á bak við fjárkúgun upp á 28 milljónir norskra króna.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
23 kr
Lyssna direkt efter köp
Öðru hverju heyrast sögur um misklíð milli nágranna sem endar með fjandskap og málaferlum. Sem betur fer lýkur slíkum málum afar sjaldan með mannvígum en nágrannaerjur í Bergen enduðu þó með grimmdarlegu morði aðfaranótt 6. júní 2003.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
34 kr
Lyssna direkt efter köp
Finnland hefur lengi verið þekkt fyrir að vera réttarríki. Í Finnlandi hafa alþjóðlegir sáttmálar verið virtir út í ystu æsar. Dómur fyrir afbrot er byggður á traustum sönnunum. Játning ákærða nægir ekki einu sinni sem grundvöllur fyrir dómi. Þegar ákærði neitar sök, þarf enn öruggari sannanir. Mistök eru ekki leyfð í dómsmálum.
Í Turku komst upp um versta klúður sem átt hefur sér stað í nútíma réttarfarssögu Finnlands. Ætli það hefði ekki komið sér best fyrir trúverðugleika lögreglu, saksóknara og dómstóla sem og áfrýjunaraðila að það hefði fallið í gleymsku?
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
23 kr
Lyssna direkt efter köp
Þriðjudaginn 16. júní 2002, kl. 06.45, ók hinn 33 ára gamli Janne (nafni breytt) bíl sínum í miðborg Helsinki eftir Mannerheimsvegi, í átt að Kamppitorgi, á leið til vinnu sinnar við byggingarframkvæmdir í miðborg Helsinki. Janne hafði lagt af stað í vinnuna frá Ruskeasuo, garðlandahverfi u.þ.b. þrjá kílómetra frá miðborg Helsinki, þar sem hann átti bústað.
Dagurinn átti að verða eins og hver annar vinnudagur og Janne grunaði síst að þessi nýbyrjaði vinnudagur yrði sá síðasti í lífi hans, og raunar hans hinsti dagur. Hann beygði af Mannerheimsveginum inn á Nyrðri-Járnbrautargötu, og meðan hann beið eftir grænu umferðarljósi á móts við Hótel Helka sprakk Opel Kadett Caravan-bíllinn hans í loft upp.
Sprengingin var svo kröftug að bíll Jannes gjöreyðilagðist og olli talsverðum skemmdum í nágrenninu. Sjálfur lést Janne þegar í stað.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
34 kr
Lyssna direkt efter köp
Laugardaginn 20. desember 2003, um kl. 01.30, varð ung kona fyrir verstu árás sem kona getur orðið fyrir í velferðarsamfélagi okkar, sem kannski er best skipulagða samfélag í heimi. Konan var 29 ára gömul og var að læra uppeldisfræði. Henni hafði verið boðið í jólahlaðborð í Óðinsvéum og hún hjólaði heim á leið úr miðborginni. Þær hjóluðu saman tvær vinkonur en fóru svo hvor sína leið og eftir það varð konan fyrir grófri kynferðislegri árás.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
34 kr
Lyssna direkt efter köp
Það að fá arf getur verið ánægjulegur viðburður en í þessu tilviki hafði það dauðann í för með sér.
Henrik Nordström Hansen var 51 árs gamall og hafði erft tvær milljónir danskra króna eftir stjúpföður sinn þegar hann fannst látinn í kjallara einbýlishúss á Írisvegi 6 í Óðinsvéum. Slökkvilið hafði áður verið kallað á staðinn vegna eldsvoða í húsinu. Líkskoðun sýndi að hann hafði látist áður en eldurinn kom upp og að hann hafði hlotið áverka eftir barefli.
Rannsóknin beindist fljótlega að því hvort arfurinn væri bein ástæða fyrir dauða hans.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
23 kr
Lyssna direkt efter köp
Rannsóknarlögreglumenn á bakvakt vita ekki á hverju þeir eiga von í upphafi vaktarinnar. Þann sem þetta skrifar grunaði ekki að hann þyrfti að rannsaka mál þar sem samkvæmi ungmenna hafði snúist upp í blóðuga árás, en þar munaði litlu að ungur maður léti lífið. Það kostaði mikla vinnu og flókna rannsókn að ljúka málinu, þótt ekki tækist að upplýsa hvert atriði.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
23 kr
Lyssna direkt efter köp
Þorsteinn Þ. Hraundal er einn af brautryðjendunum í þjálfun og vinnu með fíkniefnaleitarhunda á Íslandi. Hér segir hann frá upphafi þjálfunar og vinnu með slíka hunda og þeim sem þar voru í fararbroddi. Síðan segir hann smellna sögu um mál sem leitarhundur hans átti mestan heiður af því að upplýsa.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
23 kr
Lyssna direkt efter köp
Hvernig gat þetta gerst, spurðu margir sig þegar fréttist af hörmulegu sjóslysi sem varð svo til uppi í landsteinum við Reykjavík í september 2005. Skemmtibát, sem hafði verið á siglingu innan hafnarsvæðisins, var siglt á Skarfasker, sem er rúma 300 metra undan landi þar sem styst er, með þeim afleiðingum meðal annars að maður á fertugsaldri lést við ásiglinguna og fimmtug sambýliskona hans drukknaði eftir að bátnum hvolfdi er honum var siglt stórskemmdum frá skerinu.
Dómsmálið vakti mikla athygli auk þess að vekja upp sterkar tilfinningar, jafnvel hjá fólki sem tengdist ekki þeim sem létust á nokkurn hátt. Ástæðan var líkast til sú að skipstjóri og eigandi bátsins, sem var ölvaður þegar ásiglingin átti sér stað, neitaði að hafa verið við stjórnvöl bátsins þegar hann steytti á skerinu og sagði konuna, sem drukknaði eftir ásiglinguna, hafa verið við stýrið, en þessi framburður skipstjórans gekk þvert á niðurstöður rannsókna lögreglu og réttarmeinafræðings. Þá hafði skipstjórinn ekki gripið til björgunarráðstafana af neinu tagi í kjölfar ásiglingarinnar heldur siglt bátnum frá skerinu, þó ekki stystu leið að landi, uns honum hvolfdi.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
23 kr
Lyssna direkt efter köp
Rannsókn kynferðisbrota er oft frábrugðin öðrum lögreglurannsóknum. Þetta eru viðkvæm mál, fórnarlambið er andlega niðurbrotið, sjaldnast eru vitni að atburðinum sjálfum og sönnunargögn oft ekki til. Í raun standa oft orð brotaþola gegn orðum sakbornings.
Miðað við þann fjölda sem leitar til Neyðarmóttöku fórnarlamba kynferðisbrota og Stígamóta er það aðeins lítill hluti þolenda kynferðisbrota sem leggur fram kæru til lögreglu og ekki fara öll kærð mál fyrir dóm.
Sönnunarbyrði er þung þannig að oft er erfitt að sanna að kynferðisbrot hafi átt sér stað. En rannsóknin er ekki eingöngu til að sanna að kynferðisbrot hafi átt sér stað heldur einnig til að kanna hvort svo hafi ekki verið. Í einstaka tilvikum getur verið um ranga kæru að ræða og rangar sakir. Þá torveldar það oft rannsóknina að í sumum málum, sem koma til rannsóknar, er langt liðið frá atburðinum sjálfum, lífsýni finnast ekki auk þess sem ekkert vitni er til að staðfesta brotið.
Í frásögn þessari er greint frá nokkrum málum sem ákært var í og sakborningar hlutu dóma. Ekki verður farið nákvæmlega í rannsókn málsins eða ákæruliði en aðeins kynnur þáttur rannsóknarlögreglu í málinu.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
46 kr
Lyssna direkt efter köp
Sundurstungið lík af erlendum, óþekktum manni, bundið með kaðli og innpakkað í svarta ruslapoka, sökkt í höfn á fáförnum stað með keðjuhönk og gúmmíbobbingi, var sá veruleiki sem blasti við íslensku lögreglunni í febrúar 2004.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
34 kr
Lyssna direkt efter köp
Með bættari tengslum Íslands við umheiminn fer þeim fjölgandi, erlendu aðilunum, sem rekur á fjörur íslenskrar lögreglu í tengslum við lögbrot. Sumum þeirra hefur tekist að smjúga úr greipum lögreglu víðs vegar um heiminn í brotastarfsemi sinni en eru svo gripnir hér, þar sem þeir misreikna hversu fámenn þjóðin er og hvað fáir valkostir eru til að komast að og frá landinu. Á sumarmánuðum 2005 munaði minnstu að einum slíkum tækist ætlunarverk sitt með fjársvikuÖllum nöfnum hefur verið breytt.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
34 kr
Lyssna direkt efter köp
Sumarið 1997 hófst ein umfangsmesta lögreglurannsókn sem fram hefur farið á Íslandi, rannsókn sem hefur gengið undir nafninu MÁLVERKAFÖLSUNARMÁLIÐ. Málið snerist um að forráðamaður stærsta uppboðshúss landsins var grunaður um að hafa falsað eða látið falsa hátt í 200 málverk eftir flesta þekktustu og dáðustu listmálara Íslands og síðan blekkt viðskiptavini til að kaupa verkin. Grunur lék á um að um skipulagða brotastarfsemi hefði verið að ræða sem hafi staðið yfir árum saman.
Mikið var fjallað um málið í fjölmiðlum enda hafði það slík áhrif á málverkamarkaðinn á Íslandi að eftirspurn eftir myndverkum eftir látna, íslenska málara dróst verulega saman og verð féllu. Vantraust ríkti á íslenskum listaverkamarkaði sem varla hefur gróið um heilt enn. Áhrifin, sem málið hafði á feril og orðspor listamannanna sjálfra, voru þó enn alvarlegri, ekki síst þar sem þeir voru allir látnir og gátu því ekki sjálfir borið hönd fyrir höfuð sér.
Segja má að tilraun hafi verið gerð til að breyta ásýnd og listamannaferli 13 af ástsælustu listmálurum Íslands.
Heildarrannsókn málsins tók alls um 6 ár en ekki var unnt að beita hefðbundnum rannsóknaraðferðum nema að litlu leyti enda hafði engin sambærileg rannsókn fyrr verið framkvæmd á Íslandi. Þrátt fyrir nákvæmar athuganir víða um heim gátu rannsóknarar ekki fundið erlendar rannsóknir sem unnt var að byggja einstaka rannsóknarþætti á heldur urðu þeir að leita til fjölmargra innlendra og erlendra sérfræðinga og raða einstökum niðurstöðum þeirra saman í rannsóknarniðurstöður.
Í þessari grein verður fjallað um fyrri hluta þessa máls sem varðar 3 málverk en sérstök ákæra var gefin út vegna þess hluta. Um síðari hluta málsins, sem snerist um 180 myndverk, verður fjallað síðar.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
91 kr
Lyssna direkt efter köp
Þú er nú að handleika 7. bókina í ritröðinni Norræn Sakamál. Þessi bók er sérstök að því leyti að nær helmingur hennar eru frásagnir af íslenskum sakamálum. Og þau eru öll sérstök og áhugaverð. Sum þeirra vöktu sérstakan áhuga almennings og voru mikið á forsíðum dagblaða meðan þau voru í rannsókn. Þau höfðu líka áhrif á íslenskt samfélag og einstöku áhrifa þeirra gætir enn í dag, mörgum árum síðar.
Þar má nefna málverkafölsunarmálið en afleiðingar þess hafa enn áhrif á verð íslenskra málvera á uppboðsmörkuðum að sögn kunnugra. Frásögnin um slysið á Viðeyjarsundi er ógleymanleg og eftirmálar þess eru enn á dagskrá fjölmiðla. Líkfundarmálið á Neskaupstað var forsíðuefni dagblaða í margar vikur, það komst einnig á síður erlendra blaða og enn er mjög áhugavert að lesa um það sem raunverulega gerðist.
Sveðjumálið í Garðabæ er frásögn af máli sem olli skjálfta í heilu bæjarfélagi og áhrif þess finnast enn í dag. Frásögnin um kynferðisbrot er nokkuð sem allir ættu að lesa því hún er ekki aðeins frásögn af sérstökum og áhugaverðum málum, heldur líka lýsing á þessum viðkvæma og erfiða málaflokki sem allir ættu að kynnast nánar.
Hundurinn leysti málið er hugnæm frásögn af því hvað fíkniefnahundur er á margan hátt hæfileikaríkari en við sjálfir. Sagan allt í lagi þið náðuð mér lýsir því vel að við erum ekki lengur afskekktir heldur í miðri hringiðu afbrota heimsins þótt við gerum okkur það ekki alltaf ljóst.
Auk þessara íslensku frásagna eru greinar um mál frá hinum Norðurlöndunum. Þær eru margar mjög sérstakar og þess eðlis að enginn ætti að láta þær fram hjá sér fara. Þær eru líka spennandi og margt hægt af þeim að læra. Það er tvímælalaust að frásagnirnar í þessari bók eru bæði áhugaverðar og lærdómsríkar og enginn ætti að láta þær ólesnar.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
23 kr
Lyssna direkt efter köp
Það hljómar ef til vill undarlega að síbrotamaður fyllist siðferðilegri hneykslun og móðgun vegna atburðar sem snertir hann ekki sjálfan. En í ágúst 2003 var slík móðgun einmitt orsök fyrir grimmúðlegu, tvöföldu morði í Lahtis.
Með þessum verknaði vildi morðinginn fá uppreisn til handa systur sinni fyrir það sem hafði komið fyrir hana nálægt 20 árum áður, nokkuð sem hann hafði fengið vitneskju um fyrir tilviljun. Systirin hafði ekki áhuga á að finna neinn í fjöru vegna þessa atburðar. En morðingjanum fannst að gerðir hans ættu rétt á sér og hann iðraðist einskis, – heldur ekki þótt hann við sama tækifæri myrti saklausa manneskju sem var sambýliskona fórnarlambsins.
Nöfn sögupersónanna eru tilbúin.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
23 kr
Lyssna direkt efter köp
5. nóvember 2002 var ég á kvöldvakt og um klukkan 19.00 fékk ég símtal frá rannsóknarlögreglunni í Þrændalögum. Erindið var að biðja mig um aðstoð vegna atburðar sem þeir höfðu frétt af. Blaðaljósmyndari hafði hringt í þá og spurt hvaða upplýsingar þeir hefðu um dauðsfall í Lade. Lítil stúlka átti að hafa dottið út um glugga þar og látist. Stúlkan hafði að sögn verið flutt á St. Olavs-sjúkrahúsið með sjúkrabíl.
Lögreglan hafði ekki fengið neina tilkynningu um þetta eftir hefðbundnum leiðum. Tilkynningin um slysið hafði farið beint til bráðamóttöku sjúkrahússins en lögreglan hafði ekki verið látin vita. Hjá miðstöð rannsóknarlögreglunnar í Þrændalögum fékk ég þær litlu upplýsingar sem þeir höfðu um málið. Álitið var að þriggja ára stúlka hefði dottið út um glugga eða niður frá húsi og látist í kjölfarið.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
23 kr
Lyssna direkt efter köp
Málið fékk fljótlega heitið Möllevangsmálið í rannsókninni og í stórum fyrirsögnum fjölmiðla. Tilefnið var íkveikja í Möllevangsskólanum í Árósum 14. janúar 2003, kl. 00.38, sem leiddi til þess að heil álma brann til grunna en hún var 1200 fermetrar og metin á um 20 milljónir danskra króna.
Auk íkveikjunnar í Möllevangsskólanum fjallaði málið um mörg önnur alvarleg afbrot, og náði einnig yfir brot sem áður hafði verið fjallað um með stórum fyrirsögnum í dagblöðunum. Meðal annars voru þetta alvarleg skemmdarverk sem höfðu verið framin fjórum sinnum á 400 grafreitum í tveimur kirkjugörðum í Árósum og Hornslet.
Þá var fjallað um grimmdarleg dráp á fjórum kanínum við leikvöllinn Barnaland.
Sömu piltarnir höfðu einnig kveikt tvisvar í Aðventukirkjunni, kveikt í Samsögötuskóla, í Elísu Smith-skólanum, í sveitabýli í Hornslet, auk þess að hafa kveikt þrisvar í bílum.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
46 kr
Lyssna direkt efter köp
Aðfaranótt 22. apríl, þann þriðja í páskum, árið 2003, var verðmætaflutningabíll á vegum Securitas rændur við skrifstofu Sparbanken Tanum í Grebbestad og voru fimm grímuklæddir menn að verki. Ránið var mjög gróft og mjög vel skipulagt. Ræningjarnir voru vopnaðir AK4 veiðirifflum, afsöguðum haglabyssum og skammbyssum. Þeir voru líka með sprengiefni með sér til að geta sprengt upp dyrnar á flutningabílnum ef verðirnir mundu ekki opna þær. Á meðan á ráninu stóð hótuðu ræningjarnir vörðunum lífláti, meðal annars með að öskra: “Ef lögreglan kemur skjótum við ykkur!”
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
23 kr
Lyssna direkt efter köp
Hér segir frá 33 ára manni sem verður eftirleiðis kallaður Per. 11. maí 2003 var honum rænt frá sambýlinu Kanalgården í Næstved og hann fluttur á sveitabýli í Dannemare, þar sem hann mátti þola mjög gróft og hættulegt ofbeldi og misþyrmingar á meðan grillveisla var haldin þar. Eftir grillveisluna var hann lokaður inni í heila viku, á ýmsum stöðum á Lálandi, þar til honum tókst að flýja.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
23 kr
Lyssna direkt efter köp
Að myrða manneskju er alvarlegasti glæpur sem hugsast getur. Það er erfitt að flokka morð eftir því hversu alvarlegt það er en grimmdarlegt morð á óléttri unglingsstúlku hlýtur að vera með því óhugnanlegasta sem hægt er hugsa sér. Auk þess er erfitt að gera sér í hugarlund hvaða refsing sé hæfileg fyrir annan eins verknað. Í þessu máli var það barnsfaðirinn sem var morðinginn, sem var ekki til að gera málið auðveldara. Og einkennilegt var hve ákaflega tilfinningalaus og kaldlyndur hann reyndist vera eftir að sambýliskona hans hvarf.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
23 kr
Lyssna direkt efter köp
“Við ætluðum bara í skíðaferð til Bergen.” Þetta var útskýring þriggja Rúmena eftir að lögreglan handtók þá grunaða um að hafa afritað greiðslukort margra aðila í Noregi. Lögreglumönnum, sem komu að yfirheyrslum yfir Rúmenunum, fannst framburður þeirra oft vera á mörkum gríns og alvöru. Lögreglumönnum, upprunnum í sunnanverðum Noregi, með góða þekkingu á staðháttum, fannst umhugsunarefni að menn færu í skíðaferð frá Rúmeníu til Noregs og þá til “vetraríþróttastaðarins” Bergen. Þetta var meðal annars eitt þeirra atriða sem lögreglan benti á við meðferð málsins fyrir dómi. Hinir grunuðu höfðu unnið heimavinnuna sína en ekki alveg nógu vel.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
34 kr
Lyssna direkt efter köp
Fangelsi í þrjú ár og í tvö ár og tíu mánuði urðu afleiðingarnar fyrir karlmann og konu frá Balkanlöndunum sem höfðu stundað nútímaþrælahald, verslun með stúlkur í kynferðislegum tilgangi. Dómarnir voru kveðnir upp í Gautaborg vorið 2004 og það var í fyrsta skipti sem dæmt var fyrir brot sem þessi í Svíþjóð. Hjúin voru dæmd fyrir að hafa neytt pólska stúlku til að selja sig í Danmörku og Svíþjóð.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
23 kr
Lyssna direkt efter köp
Klukkan 09.10 miðvikudaginn 17. september 2003 sprakk sprengja í svartri Toyota Corolla-bifreið sem var nýfarin út af bifreiðastæði við Amtssjúkrahúsið í Glostrup. Bifreiðin var komin út á götuna sem liggur frá bifreiðastæðinu þegar sprengjan sprakk.
Ökumaður bifreiðarinnar var Mickey Larsen sem var 32 ára og fyrrum Bandidosmeðlimur og lést hann samstundis.
Sprengingin var svo öflug að bifreiðin hentist um 20 metra í loft upp og brak úr henni ásamt líkamspörtum dreifðist yfir mjög stórt svæði. Strax eftir sprenginguna kviknaði eldur í bifreiðinni og allt brann sem brunnið gat.